Framleiðsla

Nákvæm vinnsla. Stuttar leiðir.

Vinnsluferlið er í stöðugri endurskoðun með það að markmiði að gera það markvissara og einfaldara.

Tvær framleiðsluleiðir

Rétt meðhöndlun fyrir hvern markað.

Frysting

Þorskframleiðslan skiptist á milli Evrópu og Ameríku. Ýsa fer einkum á Bandaríkjamarkað og megnið af steinbít verður að harðfiski fyrir innanlandsmarkað.

Fersk flök

Ferskfiskvinnslan hefur verið efld á síðustu árum. Flökin eru flutt með flugi og koma á borð neytenda án þess að hafa verið fryst.

Söluleiðir

Samstarf á alþjóðlegum mörkuðum.

HighlinerSeafood er helsti söluaðili frystra afurða. Meðal söluaðila ferskra afurða eru Iceland Westfjords Seafood IWS, Novofood, Bacco Seaproducts og ISI.

Hráefni

Sýni eru tekin af hráefni fyrir vinnslu og meðhöndlun um borð í viðskiptabátum er metin.

Snyrting

Stöðugt eftirlit er með snyrtingu flaka í fiskvinnslunni.

Búnaður

Húsnæði og búnaði er viðhaldið í samræmi við reglugerðir og kröfur matvælamarkaðarins.

Beint frá Suðureyri

Ræðum afurðir og samstarf.

Hafðu samband við framkvæmdastjóra eða sérhæfða starfsmenn fyrirtækisins.

Hafa samband