Afurðir

Þorskur. Ýsa. Steinbítur.

Ferskar og frystar sjávarafurðir fyrir markaði á Íslandi, í Evrópu og Norður-Ameríku.

Megintegundir

Hráefni úr gjöfulum miðum Vestfjarða.

Þorskur er meginafurðin. Auk hans vinnur Íslandssaga ýsu og steinbít með skýra markaði fyrir hverja tegund.

Þorskur

Um 2.100 tonn af hráefni eru unnin árlega. Þorskafurðir fara að jöfnu til Evrópu og Ameríku.

Ýsa

Um 900 tonn af ýsu eru unnin á ári og stærsti hluti framleiðslunnar fer á Bandaríkjamarkað.

Steinbítur

Um 200 tonn af steinbít eru unnin árlega. Stærsti hluti framleiðslunnar verður að harðfiski fyrir íslenskan markað.

Fiskvinnsla hjá Íslandssögu
Tvenns konar framsetning

Ferskt og fryst.

Fersk flök fara með flugi á erlenda markaði og koma þannig á borð neytenda án þess að hafa verið fryst. Frystar afurðir fara til söluaðila á alþjóðlegum mörkuðum.

2.100 t
þorskur á ári
900 t
ýsa á ári
200 t
steinbítur á ári
Beint frá Suðureyri

Ræðum afurðir og samstarf.

Hafðu samband við framkvæmdastjóra eða sérhæfða starfsmenn fyrirtækisins.

Hafa samband