Þjónusta við kaupendur
Kauptu hvar sem þú ert.
Uppboð fara fram á netinu kl. 13 alla virka daga. Að loknu uppboði er fiskurinn merktur kaupanda, gerður tilbúinn til afhendingar og gengið frá honum samkvæmt óskum, til dæmis með viðbættum ís.
01
Uppboð og skráning
Aflinn er skráður í sölukerfi Reiknistofu fiskmarkaða með upplýsingum um veiðisvæði, þyngd, aldur, stærð, hitastig og veiðarfæri.
02
Stærðarflokkun
Vélbúnaður til að stærðarflokka bolfisk er á Arnarstapa, í Grundarfirði, Ólafsvík, Rifi og Stykkishólmi.
03
Slæging og frágangur
Slæging er í boði á sex starfsstöðvum og fiskur er merktur kaupanda og gerður tilbúinn til afhendingar að loknu uppboði.
04
Vigtun og rekjanleiki
FMÍS annast vigtun og endurvigtun og skráning fiskkara tryggir rekjanleika frá báti til kaupanda.

