Starfsemi á landi og sjó.
Sérhæfðar deildir fyrir vélar, stál, rennismíði, tækni, diesel, skip, orku og varahluti.

Plötu- og stálsmíði
Plötu- og stálsmíðaverkstæðið er búið tækjum og mannskap til að taka að sér verk af ólíkri stærðargráðu.

Véladeild
Í vélaverkstæðinu starfar fólk með langan starfsaldur til sjós og lands og þekkingu úr mörgum greinum atvinnulífsins.

Renniverkstæði
Renniverkstæðið sinnir almennri rennismíði, jafnvægisstillingum, hónun og nákvæmum mælingum.

Tæknideild
Tæknideildin sinnir tilboðum, teiknivinnu, ráðgjöf og tæknilegri þjónustu við aðrar deildir.

Dieselverkstæði
Dieselverkstæðið í Vesturhrauni þjónustar eldsneytiskerfi í bílum, iðnaðarvélum, bátum og skipum.

Slippurinn
Vélsmiðjan rekur Slippinn í Reykjavíkurhöfn og byggir þjónustuna á langri hefð í skipasmíðum, skipaviðgerðum og stálsmíði.

Skipaþjónusta
Þjónustan nær frá almennu viðhaldi til umfangsmikilla endurbóta, skrúfuviðgerða og málningarvinnu.

Orka og stóriðja
Vélsmiðjan hefur unnið að nýsmíði, endurbótum og viðhaldi í vatnsafls- og gufuaflsvirkjunum, orkudreifingu og stóriðju.

Verslun
Varahlutaverslunin í Vesturhrauni leggur áherslu á eldsneytiskerfi, túrbínur og sérpantanir fyrir viðskiptavini.
