Þjónusta

Framleiðsla sem fylgir þörfinni.

Íslensk kassagerð, persónuleg þjónusta og sveigjanleg afgreiðsla fyrir innlend fyrirtæki.

Fá ráðgjöf
Umbúðir og framleiðsla
Sveigjanleg afgreiðsla

Minna í senn. Oftar ef hentar.

Kassaáskrift getur minnkað bundið fjármagn og plássþörf. Magn, bylgjutegund, afhending og tíðni eru sett upp í samræmi við óskir viðskiptavinar.

Sérframleiddir kassar

Pappakassar framleiddir eftir máli, í litlum eða stærri upplögum og í útfærslu sem hentar vörunni.

Prentun á umbúðir

Flexo-prentun á bylgjupappa með vatns- og rakaþolnum litum úr jurtaríkinu.

Kassar í áskrift

Regluleg afgreiðsla eftir óskum um magn, bylgjutegund, afhendingartíma og afhendingartíðni.

Umhverfisvænar lausnir

Rétt stærð, ábyrg hráefnisnýting og áhersla á endurvinnslu draga úr óþarfa umfangi.

Árs-, ársfjórðungs- eða mánaðarleg afgreiðsla.

Viðskiptavinir í áskrift fá forgang í þjónustu og afgreiðslan tekur mið af magni, hráefni og afhendingartíma.

Spyrja um áskrift
Sérsmíði og ráðgjöf

Umbúðir í réttri stærð, gerð og magni.

Sendu mál, magn og upplýsingar um notkun. Umbúðagerðin aðstoðar við að finna rétta útfærslu.