Fyrirtækið
Reynsla, sveigjanleiki og persónuleg þjónusta.
Hjá Stjörnustáli vinna að jafnaði 6–8 manns auk verktaka í nánu samstarfi. Fyrirtækið tekur meðal annars að sér smíði og uppsetningu á stigum, innréttingum, girðingum, hillum og rekkakerfum.
Stjörnustál hefur annast viðhald fyrir Samskip, Húsasmiðjuna, Skeljung og fleiri. Lítil yfirbygging og stutt ákvarðanaferli gera fyrirtækinu kleift að bjóða hraða og markvissa þjónustu.
