Um fyrirtækið

Saga mótuð af bílaáhuga og verkþekkingu

1987

Stál og stansar var stofnað árið 1987 í Súðarvogi 48. Starfsemin var upphaflega stansa- og mótasmíði og rekstur renniverkstæðis.

Bílaáhugi starfsmanna varð til þess að starfsemin þróaðist fljótt í smíði og viðgerðir á drifsköftum, rennivinnu og breytingar á jeppum. Árið 1990 flutti fyrirtækið að Vagnhöfða 7 og kom þar upp verslun samhliða verkstæðunum.

Samstarf við þáverandi umboðsaðila Ford um fjórhjóladrifsbreytingar á Ford Econoline leiddi til innflutnings bílavarahluta. Eftirspurnin jókst og sala varahluta varð sífellt stærri hluti starfseminnar.

Sumarið 2007 stækkaði aðstaðan að Vagnhöfða 7 um 633 m². Í dag rekur fyrirtækið 300 m² verslun, vörulager og renniverkstæði og þjónustar viðskiptavini um land allt.

Vörumerki

Al-Ko
Anco
AVM
BendPak
Bulldog
Cardone
CTR
Dayco
Dexter
Dorman
Fulton
Gabriel
Joe’s
Koyo
Moog
Motive Gear
Neapco
QuickJack
Quick Steer
Ranger
Raybestos
Reese
Royal Purple
Sangsin
Sicit
SuperPro
Suplex
Tow Ready
TRW
URW