
Um Nes
Skipafélag með sögu frá 1974.
Nes var stofnað á Grundarfirði til að stunda siglingar milli Íslands og annarra landa.
1974
Félagið keypti fyrsta skip sitt sama ár. Skipið hét Svanur.
Nes var stofnað á Grundarfirði og hefur alltaf verið skráð þar, þó skrifstofur félagsins hafi verið í Reykjavík og síðar í Hafnarfirði.
Pálmi Pálsson var aðaleigandi og hvatamaður að stofnun félagsins. Hann var fyrstu árin skipstjóri á Svani og varð síðar framkvæmdastjóri félagsins til 2011.
Í dag gerir Nes út systurskipin Hauk og Sunnu. Bæði eru lausavöruskip og sú starfsemi hefur verið meginverkefni félagsins frá upphafi.
Auk verkefna tengdum Íslandi hefur Nes alla tíð stundað siglingar milli hafna erlendis með lausavöru.
Flutningsverkefnið
Ræðum farm og áfangastað.
Hafðu samband við Nes vegna heilfarma- og lausavöruflutninga.
