H
Málmsteypa

Ál og kopar. Mót og metnaður.

Hella hefur sérhæft sig í steypu úr áli og kopar frá stofnun fyrirtækisins árið 1949.

Efni og reynsla

Þekking sem mótast með hverju verki.

Framleiðslan hófst með brotamálmum og heimasmíðuðum tækjum á tímum innflutningshafta. Með árunum jókst nákvæmni í efnismeðferð, steypuhita og hitameðferð.

Al

Álblöndur

Kísilblandað ál fyrir steypuhæfni og sveigjuþol; magnesíumblandað ál þar sem selta veldur tæringu.

Cu

Koparsteypa

Koparblöndur, legumálmar, skildir, merkingar og sérsmíðaðir hlutir.

Starfsmaður við málmsteypu
Framþróun

Efnisgæði fyrir krefjandi aðstæður.

Þróunarstarf Hellu hefur meðal annars beinst að tæringarþoli, brotstyrk og efnisblöndum fyrir sjávarútveg, fiskvinnslu og orkukerfi.

Tæringarþol

Magnesíumblandað ál hentar þar sem selta reynir á búnað.

Brotstyrkur

Hitameðhöndlaðar álblöndur hafa verið notaðar í skautlásabúnað.

Sérhæfð framleiðsla

Steyptir íhlutir fyrir framleiðendur fiskveiði- og fiskvinnslubúnaðar.

Ál · kopar · sérsmíði

Ræðum næsta verkefni.

Hafðu samband við Málmsteypuna Hellu um framleiðslu, lagerhluti eða sérsmíðaða lausn.

Hafa samband