
Íslensk gæðaframleiðsla
Í réttum
gæðum.
Gluggar og útihurðir sérsmíðuð á Hellu samkvæmt viðurkenndum íslenskum stöðlum.
2004
stofnár
NT 116
Nordtest vottun
Hella
íslensk framleiðsla
Þjónusta
Gluggar og hurðir eru andlit húsa.
GK Gluggar sérhæfir sig í framleiðslu á timburgluggum og útihurðum. Hver eining er gerð samkvæmt óskum viðskiptavinar innan gæðakrafna fyrirtækisins.
Sérsmíði eftir málum
Sendu teikningar eða ljósmyndir með málum. Einingarnar eru teiknaðar og bornar undir verkkaupa fyrir framleiðslu.
Nýsmíði og viðgerðir
Fyrirtækið býr að víðtækri reynslu jafnt af nýsmíði sem viðgerðum.
Prófuð framleiðsla
Gluggar GK Glugga hafa fengið vottun samkvæmt Nordtest Build NT 116.
Frá hugmynd að framleiðslu
Skýrt ferli frá teikningu að tilbúinni einingu.
01
Sendu teikningar
Sendu glugga- eða hurðateikningar, eða ljósmyndir með skráðum málum.
02
Fáðu tilboð
Tilboð er gert samkvæmt framlögðum gögnum og áætlaður afhendingartími kemur fram.
03
Staðfestu útfærslu
Einingarnar eru teiknaðar og teikningar sendar verkkaupa til samþykktar.
04
Framleiðsla hefst
Eftir staðfestingu verkkaupa getur framleiðsla hafist.

Fullkomið trésmíðaverkstæði
Nákvæmni í hverju smáatriði.
GK Gluggar framleiðir undir kjörorðinu „Í réttum gæðum“. Fullkomnar vélar, valið hráefni og faglegt starfsfólk styðja við gæði framleiðslunnar.
Kynna sér fyrirtækiðÓskir þínar í gluggum og hurðum
