
Ástandsmat og kostnaðaráætlun
Vita hvað þarf — áður en byrjað er.
Ástandsmat Byggingaráðs byggir á sjónskoðun, uppmælingu, teikningum og upplýsingum um viðhald fasteignarinnar.
Undirbúningurinn
Traustari ákvörðun um umfang og kostnað.
Ástandsskýrsla og kostnaðaráætlun gefa húseigendum skýrari grunn til að ákveða hvort farið verði í hluta framkvæmdar eða heildarviðhald.

Niðurstaðan
Skýrari mynd af því hvað þarf að gera og í hvaða röð.
Gögnin að baki matinu
Ekki bara augnabliksmynd.
Matið byggir á sjónskoðun og uppmælingu á staðnum, teikningum sem aflað er hjá byggingarfulltrúa og upplýsingum eigenda um fyrra viðhald og umhirðu.
Sjónskoðun á staðnum
Uppmæling eftir þörfum verkefnis
Teikningar og fyrirliggjandi gögn
Upplýsingar um viðhald undanfarinna ára
Frá skoðun að ákvörðun
Næstu skref verða sýnileg.
Þegar ástand og kostnaður liggja fyrir er hægt að forgangsraða viðhaldi og ákveða umfang framkvæmdar. Í framhaldinu getur Byggingaráð útbúið útboðs- og verklýsingar.
Næst: útboðsgögn01
Skoðun og öflun upplýsinga
02
Ástandsskýrsla og kostnaðaráætlun
03
Ákvörðun um umfang framkvæmda
Kostnaðaráætlun er viðmið. Endanlegur kostnaður ræðst af tilboðum, markaðsaðstæðum og atriðum sem geta komið í ljós þegar framkvæmdir hefjast.
