
Fyrirtækið
Alverk frá árinu 2007.
Framsækið mannvirkjafyrirtæki með áherslu á framkvæmdir, rekstrar- og verkfræðiráðgjöf.
Um Alverk
Stjórnun, framkvæmd og ráðgjöf undir sama þaki.
Alverk var stofnað árið 2007 af Aðalgeir Hólmsteinssyni. Félagið hefur síðan sinnt framkvæmdar- og ráðgjafarverkefnum í mannvirkjagerð, að mestu á Íslandi en einnig um tíma í Noregi.
Fyrirtækið hefur yfirumsjón með verkefnum á framkvæmdastigi, sem stjórnunar-, al- eða aðalverktaki, og sinnir jafnframt byggingastjórn. Alverk veitir einnig ráðgjöf við undirbúning framkvæmda, virðisgreiningu og hönnun.

Gæðastefna
Hagkvæmni, vistvæni og ábyrgð.
Alverk tengir hönnun, efnisval og uppbyggingu við framtíðarsýn þar sem gæði og samfélagsleg ábyrgð fara saman og styðja við aukna sjálfbærni mannvirkja á líftíma þeirra.
Næsta verkefni