



Sófar og stólar
SPACE 5300 Rafstillanlegur Hægindastóll
Hvíldarstóll frá Noregi
Space 5300 er vandaður og einstaklega þægilegur rafstillanlegur hvíldarstóll með viðaráferð á hliðum. Stóllinn er búinn innbyggðri rafhlöðu þannig að engar snúrur liggja meðfram gólfum. Hægt er að stilla bak og skammel í sitthvoru lagi fyrir hámarksþægindi. Höfuðpúði er stillanlegur bæði á hæð og fram fyrir aukinn stuðning við háls og höfuð. Space 5300 býður upp á nánast óteljandi möguleika í leður- og tauútfærslum ásamt fjölbreyttum viðaráferðum á hliðum. Stóllinn kemur á 360° snúningsfæti sem hægt er að panta í mörgum útfærslum. Rafstillanlegur hvíldarstóll Innbyggð rafhlaða – engar snúrur á gólfum Hægt að stilla bak og skammel í sitthvoru lagi Hæðarstillanlegur höfuðpúði Hægt að leggja höfuðpúða fram fyrir aukinn stuðning Mikið úrval af viðaráferðum á hliðar Mikið úrval af hágæða leðri eða vönduðu áklæði í fjölda lita 360° snúningsfótur
Fáðu upplýsingar um verð, valkosti og framboð hjá Lúr.




