


Sófar og stólar
Grace Hægindastóll
Grace Hvíldarstóll Breidd 80cm
Grace hvíldarstóll – breidd 80 cm. Grace er nettur og einstaklega þægilegur hægindastóll sem hentar vel þar sem pláss er takmarkað. Hægt er að halla bakinu aftur þó stóllinn standi nánast alveg við vegg, þar sem hann er á sleða og þarf því lítið pláss aftan við sig. Stóllinn er með raf- eða handstillanlegum höfuðpúða fyrir góðan stuðning við höfuð og háls. Grace fæst bæði með handstillanlegu eða rafstillanlegu skammeli og er fáanlegur alklæddur leðri eða í slitsterku áklæði. Eigum alla helstu liti til á lager. GRACE fæst einnig sem lyftistóll fyrir þá sem eiga erfitt með að standa upp úr hefðbundnum stólum. Hægt er að fá endurhlaðanlega rafhlöðu til að losna við snúrur á gólfum. Breidd aðeins 80 cm – nettur og plásssparandi Hægt að halla baki aftur þó stóll standi við vegg Á sleða – þarf lítið pláss aftan við sig Raf- eða handstillanlegur höfuðpúði Fæst með handstillanlegu eða rafstillanlegu skammeli Alklæddur leðri eða slitsterku áklæði Fáanlegur í mörgum litum – helstu litir til á lager Innbyggð USB hleðsla í rofa Fæst einnig sem lyftistóll Hægt að fá endurhlaðanlega rafhlöðu – engar snúrur á gólfum
Fáðu upplýsingar um verð, valkosti og framboð hjá Lúr.




