Klettháls 3, 110 Reykjavík · 567 4422
← Uppskriftir

Sörur

Uppskrift úr uppskriftasafni Kötlu.

Sörur
Hráefni

Botn

  • 4 egg (eggjahvítur)
  • 230 g heslihnetur (eða möndlur)
  • 230 g flórsykur frá Kötlu
Aðferð

Aðferð

  1. 1Hitið ofninn í 180°C. Hakkið heslihneturnar eða möndlurnar í matvinnsluvél.
  2. 2Stífþeytið eggjahvíturnar þar til hægt er að hvolfa skálinni án þess aðhvíturnar renni úr.
  3. 3Blandið hnetunum og flórsykrinum varlega saman viðeggjahvíturnar með sleikju. Mótið kökurnar með teskeið og setjið á pappírklæddaofnplötu.
  4. 4Bakið í 10 – 12 mínútur.
Hráefni

Krem

  • 4 egg (eggjarauður)
  • 1dl vatn
  • 130g sykur
  • 250g smjör, við stofuhita
  • 2– 3 msk Kötlu kakó
  • ½tsk vanillusykur frá Kötlu
  • 1msk sterkt uppáhellt kaffi
Aðferð

Aðferð

  1. 1Þeytið eggjarauðurnar.
  2. 2Hitið vatn og sykur þar til það hitnar og verður aðsírópi.
  3. 3Hellið sírópinu saman við eggjarauðurnar i mjórri bunu og haldið áfram að þeyta.
  4. 4Skerið smjörið íteninga og bætið út í.
  5. 5Næsta skref er að bæta kakó, vanillu og kaffi út íkremið.
  6. 6Þeytið í svolitla stund eða þar til kremið verður silkimjúkt. Það erágætt að smakka sig til á þessu stigi.
  7. 7Kælið kremið áður en þið setjið það ákökurnar. Gott er að sprauta kreminu á kökurnar með sprautupoka eða notateskeiðar til þess að smyrja kreminu á þær. Það er algjört smekksatriði hversumikið af kremi fer á kökurnar.
  8. 8Kælið kökurnar mjög vel, helst í frysti áður enkökurnar eru hjúpaðar.
Hráefni

Hjúpur

  • 300 g súkkulaði t.d. suðusúkkulaði
Aðferð

Aðferð

  1. 1Bræðið súkkulaðið yfir vatnsbaði.
  2. 2Dýfið kremhlutanum á sörunum ofan í súkkulaðið.
Hafðu samband

Ræðum þínar þarfir.