Klettháls 3, 110 Reykjavík · 567 4422
← Uppskriftir

Muffins með kremi og berjum

Uppskrift úr uppskriftasafni Kötlu.

Muffins með kremi og berjum
Hráefni

Uppskrift - muffins

  • 125 g smjör
  • 1 dl syk­ur
  • 2 tsk. lyfti­duft frá Kötlu
  • 1 dl hun­ang
  • 3 egg
  • 4,5 dl hveiti
  • 2 tsk vanillu­syk­ur frá Kötlu
  • 1 tsk. kar­dimomm­udropar frá Kötlu
  • 1,5 dl grísk jóg­úrt
  • Blönduð ber, t.d. hind­ber, jarðarber og blá­ber
Hráefni

Uppskrift - krem

  • 1 sítr­óna
  • 200 g rjóma­ost­ur
  • 2 dl flór­syk­ur
  • 1 dl rjómi
  • Blá­berja­duft á hnífsoddi
Aðferð

Aðferð

  1. 1Hitið ofn­inn á 200°C. Hrærið smjör og syk­ur sam­an. Bætið hun­angi út í og hrærið 1 egg sam­an við í einu.
  2. 2Blandið þur­refn­um sam­an við ásamt grísku jóg­úrt­inni.
  3. 3Setjið muff­ins­form í muff­ins­mót (fyr­ir 12) og hellið deig­inu í formin. Bakið í miðjum ofni í 15 mín­út­ur og látið kólna. Takið þá úr papp­írn­um.
  4. 4Byrjið þá á kreminu. Pressið saf­ann út sítr­ón­unni. Hrærið aðeins í rjóma­ost­in­um svo hann sé ekki kekkj­ótt­ur. Bætið flór­sykri og sítr­ónusafa út í og því næst rjóm­an­um smátt og smátt (meira eða minna af hon­um eft­ir þörf­um).
  5. 5Setjið frost­ing­inn í sprautu­poka og sprautið á kök­urn­ar. Skreytið með blá­berja­dufti og fersk­um berj­um.
Hafðu samband

Ræðum þínar þarfir.