Klettháls 3, 110 Reykjavík · 567 4422
← Uppskriftir

Heitt myntu kakó

Uppskrift úr uppskriftasafni Kötlu.

Heitt myntu kakó
Hráefni

Uppskrift

  • 2 msk Kötlu eðalkakaó
  • 1 til 2 msk sykur (fer eftir því hversu sætt þú vilt það
  • Klípa af Kötlu matarsalti
  • 2.5 dl mjólk
  • 1/8 tsk Kötlu piparmyntu dropar
Aðferð

Aðferð

  1. 1Hrærið saman kakaó, sykri og salti og u.þ.b. 2 msk af mjólk í litlum potti yfir miðlungshita þar til kakaóið og sykurinn hafa leysts upp.
  2. 2Hrærið restinni af mjólkinni saman við og hitið yfir miðlungshita þar til blandan er heit, ekki gleyma að hræra í stöku sinnum.
  3. 3Hellið að lokum piparmyntudropunum saman við og berið fram.
  4. 4Berið fram með rjóma, sykurpúðum eða jafnvel piparmyntustaf.
  5. 5Ef þú vilt kakóið froðukennt er svo um að gera að hræra blönduna í blandara.
Hafðu samband

Ræðum þínar þarfir.