Klettháls 3, 110 Reykjavík · 567 4422
← Uppskriftir

Jólakonfekt

Uppskrift úr uppskriftasafni Kötlu.

Jólakonfekt
Hráefni

Uppskrift

  • 300-400 grömm dökkt súkkulaði(70%)
  • Eggjahvíta úr einu eggi
  • 500 grömm flórsykur frá Kötlu
  • 1/2 dl rjómi
  • 15-20 dropar af Kötlu piparmyntudropum
Aðferð

Aðferð

  1. 1Bræðið helminginn af súkkulaðinu og setjið í hitaþolið glas.
  2. 2Fyllið helming af silikonforminu með súkkulaði.
  3. 3Látið kólna i ísskáp á meðan þið gerið fyllinguna.
  4. 4Hrærið saman eggjahvítu, rjóma og piparmyntudropum.
  5. 5Blandið síðan flórsykri saman við þar til piparmyntumassinnn er orðinn þéttur.
  6. 6Bætið við fleiri dropum eftir smekk eða þangað til þið eruð ánægð með útkomuna.
  7. 7Setjið piparmyntumassann í sprautupoka og sprautið á stífnaða súkkulaðið í sílikonforminu.
  8. 8Bræðið síðan afganginn af súkkulaðinu og setjið yfir piparmyntumassann.
  9. 9Setjið loks formið inn í ísskáp i að minnsta kosti klukkutíma eða þar til konfektið hefur stífnað vel. Þrýstið síðan konfektinu út úr sílikonforminu.
  10. 10Geymið molana í ísskáp.
Hafðu samband

Ræðum þínar þarfir.